Wednesday, June 9, 2010

Tískubloggarar fyrir Coach

Snillingarnir í Coach hafa fengið fjóra fræga tískubloggara til að hanna fyrir sig fjórar mismunandi töskur. Sérhver taska passar við smekk bloggarans, og mér sýnist þeim hafa gengið nokkuð vel.
Ein af þeim sem hannaði tösku var Karla úr Karla's Closet sem er ein af uppáhalds tískubloggurunum mínum, hér er taskan hennar. Ath að það er hægt að taka ólina af.


Taskan í nærmynd

Karla sjálf, með töskuna að sjálfsögðu.

(Myndir fengnar af www.karlascloset.blogspot.com )

Emily (á myndinni fyrir neðan) frá síðunni Cupcakes and Cashmere hannaði þessa smekklegu ljósbleiku tösku:


(Mynd fengin frá www.cupcakesandcashmere.com )

Kelly frá The Glamourai hannaði þennan sæta... poka?


Kelly og pokinn og mjög falleg sólgleraugu

(Mynd fengin af www.theglamourai.com)

Fjórða taskan kemur frá Krystal af síðunni What is Reality Anyway


Krystal og taskan
(Mynd fengin af http://www.whatisrealityanyway.com/)

Persónulega finnst mér taskan frá Karla's Closet langfallegust, enda Karla í miklu uppáhaldi. Það er samt gaman að sjá fjölbreytnina hjá þessum fjóru ólíku týpum. Ég fagna Coach fyrir að vera svona sniðugir.
Núna vantar mig bara 52.000 fyrir töskunni.

2 comments:

  1. sniiiilldar hugmynd hjá Coach og útkoman góð:)
    mér finnst eiginlega 1, 2 og 3 sæti alveg eins og röðun á myndum kemur hér..Karla, Emily og Kristal

    ReplyDelete