Sunday, October 24, 2010

Innblástur: Lord Frederick Leighton



Almennt er fataskápurinn minn frekar óspennandi: mikið af svörtu og gráu (sjá ástarjátningu mína til þeirra í síðasta pósti), allt frekar einföld snið sem eru gerð sparilegri með hælaskóm, varalit og/eða skartgripum sem ég erfði eftir ástkæra ömmu mína.
Akkúrat núna langar mig ofsalega til að uppfæra fataskápinn minn með ljósari, kvenlegri flíkum. Það er allt Lord Frederick Leighton að kenna. Um daginn sá ég mynd eftir hann á Sweet cherry tulips, og fór að rannsaka verkin hans. Þau eru öll gullfalleg, sjá hér. Nú langar mig óskaplega í þunnar kremaðar blússur í tugatali til að para við fallegar háar buxur eins og þessar, og síð -allavega síðari- pils og kjóla með mörgum þunnum lögum. Safna svo hári og hætta að mála mig. Ég er að fara til NY í vikunni, vona innilega að ég finni einhverja æðislega vintage búð sem inniheldur allar þessar flíkur. Eða kannski finnst eitthvað í hjálpræðishernum?











Finnst ykkur þetta ekki fallegt?

Eitthvað kremað og kvenlegt af sýningum fyrir vor 2011:


ADAM


Charles Anastase


Marchesa

Það er gott að losna úr bloggstíflu :)

1 comment:

  1. Veeeeeei. Loksins búin að losna við stífluna :)

    Sátt með þig. Og með góðum pósti. Falleg verk eftir hann Frederick. Kremað er fallegur litur líka, verðum að fara bráðum í hjálpræðisherinn saman :)

    ReplyDelete